DbD – Disability before Disability –
Rannsóknasetur í fötlunarfræðum við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands bjóða til opnunar öndvegisverkefnisins Fötlun fyrir tíma fötlunar.
Rannsóknarverkefnið, sem hlaut öndvegisstyrk Rannís fyrr á þessu ári, byggist á einstöku þverfræðilegu samstarfi margra fræðigreina og fræðimanna sem beina sjónum að sögu fatlaðs fólks í íslenskri fortíð, en þetta er svið sem hefur lítið sem ekkert verið rannsakað fram til þessa.
Fundarstjóri: Ármann Jakobsson
- Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður setur málþingið
- Guðbjörg Linda Rafnsdóttir aðstoðarrektor vísinda við HÍ: „Þverfræðilegt samstarf – lífæð framsækinnar þekkingarsköpunar“
- Anna Lísa Rúnarsdóttir, sviðsstjóri rannsókna og þróunar á Þjóðminjasafni Íslands „Í leit að þekkingu“
- Rannveig Traustadóttir forstöðumaður Rannsóknaseturs í fötlunarfræðum: „Framtíðin er núna“
- Hanna Björg Sigurjónsdóttir prófessor í fötlunarfræði og verkefnastjóri öndvegisverkefnisins Fötlun fyrir tíma fötlunar.
- Berth Danermark, prófessor Þverfræðilegar rannsóknir: kenning og reynsla
Fyrri hluti málþingsins verður á íslensku en fyrirlestur Berths Danemark á ensku
Málþingið verður rittúlkað og fyrri hluti þess táknmálstúlkaður.
Berth Danermark
Í erindinu mun Berth Danermark setja fram kenningu um þverfræðileika ásamt dæmum og góðum ráðum til að takast á við þær áskoranir sem tengjast þverfræðilegri vinnu. Fyrirlesturinn er ætlaður rannsakendum, stefnumótendum, kennurum og fagfólki.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir
Léttar veitingar
Berth Danermark mun setja fram kenningu um þverfræðileika ásamt dæmum og góðum ráðum til að takast á við þær áskoranir sem tengjast þverfræðilegri vinnu. Fyrirlesturinn er ætlaður rannsakendum, stefnumótendum, kennurum og fagfólki.
![DbD – Disability before Disability - Öndvegisverkefni hleypt af stokkunum](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/gax8k.jpg?itok=qj6ENDfi)